Grunnskólinn í Stykkishólmi

 

Á döfinni :

12. nóv: "Skáld í skóla"
18. og 19. nóv.: PRÓF

Annað efni:

www.fssf.is

Snæfell HSH

íslensk leitarvél

Leitaðu á google

Námsgagnastofnun

Námsmatsstofnun

Skólavefurinn

Menntagátt

Stærðfræðivefurinn Rasmus

Vísindavefurinn

Gegnir

Heimili og skóli

 

Foreldrar athugið - Fyrirlestur

18. nóvember 2008

Mánudaginn 24 nóvember kl 20:00 verður fyrirlestur í Grunnskólanum við Borgarbraut á vegum foreldrafélaga leikskólans og grunnskólans.

 

 

 

Þetta er fyrirlestur frá samtökunum BLÁTT ÁFRAM, sem eru sjálfstæð félagssamtök sem hafa það að markmiði sínu að efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum.

Þessi fyrirlestur er styrktur af Lionsklúbbunum og Rauðakrossinum í Stykkishólmi og er því ókeypis. Fyrirlesturinn hefur farið víða um land og hlotið góðar undirtektir.

Allir eru hjartanlega velkomnir.

Sagnaþulir og lúðrasveitartónleikar

13. nóv. 2008

Á morgun ljúkum við deginum með því að fara á tónleika hjá lúðrasveitinni í kirkjunni.

Annars er ekkert lát á skemmtilegum heimsóknum til okkar. Við tökum á móti sagnaþulum, bæði íslenskum og erlendum, í fyrramálið. Þeir eru þátttakendur í verkefninu Sögueyjan 2008 sem er alþjóðleg sagnahátíð á Snæfellsnesi. Sagnaþulirnir ætla að koma í heimsóknir í 5. - 10. bekk á bilinu 8.50 til 10.30.

Jesús guð dýrlingur

13. nóv. 2008

Leiklistarval skólans hefur í haust unnið með Leikfélaginu Grímni að uppfærslu á söngleiknum Jesús guð dýrlingur (Jesus Christ Superstar).

Í gærkvöldi var verkið frumsýnt við góðar undirtektir áhorfenda og erum við í skólanum ákaflega stolt af frammistöðu nemendanna sem stóðu sig frábærlega í krefjandi hlutverkum.

Næstu sýningar eru föstudaginn 14. og sunnudaginn 16. nóvember og hefjast kl. 20.00. Bæjarbúar eru hvattir til að tryggja sér miða og missa ekki af þessum viðburði.

 

Skáld í skólum

13. nóv. 2008

Í gær fengum við góða heimsókn í skólann þegar þeir Aðalsteinn Ásberg skáld og Svavar Knútur söngvaskáld fluttu dagskrá í tali og tónum um Stein Steinarr.

Þeir félagar sögðu frá skáldinu, sýndu myndir og fluttu nokkur af þeim fjölmörgu lögum sem hafa verið gerð við ljóð Steins.

 

 

 

 

 

 

Breyting á prófdögum

10. nóvember 2008

Vegna mikilla anna hjá nemendum elstu bekkjanna (8., 9, og 10. bekkur) nú í vikunni framundan hefur verið ákveðið að færa prófdagana, sem voru auglýstir hér fyrir neðan, fram í næstu viku (þriðjudag og miðvikudag).

5. og 7. bekkur ljúka sínum prófum í þessari viku.

Lok haustannar

8. nóvember 2008

Í næstu viku lýkur haustönninni með námsmati og þá verða teknir tveir prófdagar hjá 5. - 10. bekk. Dagskráin riðlaðist örlítið miðað við það sem hafði verið talað um en í morgun var eftirfarandi dagskrá kynnt:

Mánudagur 10. nóv.: Kennsla samkv. stundaskrá
Þriðjudagur 11. nóv.: Prófdagur
Miðvikudagur 12. nóv.: Kennsla samkv. stundaskrá fyrstu 5 tímana. Í eina kennslustund á miðvikudeginum fáum við heimsókn rithöfunda vegna verkefnisins "Skáld í skólum".
Fimmtudagur 13. nóv.: Prófdagur
Föstudagur 14. nóv.: Kennsla samkv. stundaskrá til 11.30 og þá förum við á tónleika hjá lúðrasveitinni. Á föstudeginum eigum við líka von á fleiri heimsóknum sem verður sagt betur frá eftir helgina.

6. bekkur hefur lokið prófum og þess vegna er kennsla hjá þeim skv. stundaskrá í næstu viku.

Dans

3. nóvember 2008

Á morgun, þriðjudaginn 4. nóvember, verður haldin danssýning í íþróttahúsinu. Þar munu nemendur 1. - 6. bekkjar sem undanfarnar vikur hafa verið í dansnámi sýna þá dansa sem þau hafa verið að æfa.

Foreldrar og allir þeir sem sjá sér fært að mæta eru innilega velkomnir. Sýningin verður frá kl. 11.30 til 12.30.

Breytingar í starfsliði

30. okt. 2008

Þær breytingar hafa orðið frá því í haust að tveir kennarar eru nú komnir í fæðingarorlof. Sigurborg Sturludóttir fór í orlof í september og fæddi dreng laugardaginn 25. október og óskum við henni og fjölskyldunni hjartanlega til hamingju. Við starfi hennar sem umsjónarkennari 4. bekkjar tók Sara Sædal Andrésdóttir, kennaranemi, sem hefur starfað hér sem stuðningsfulltrúi. Þá þurfti Alda Leif Jónsdóttir umsjónarkennari 2. bekkjar að hætta að vinna fyrr en áætlað var og Halldóra Birna Jónsdóttir tók við hennar starfi.

Starfsdagur

20. okt. 2008

Minnt er á að næstkomandi föstudag, 24. október, verður frí hjá nemendum vegna "starfsdags kennara". Þennan dag ætlar starfsfólk skólans að fara til Reykjavíkur og á dagskránni er að skoða tvo nýlega skóla fyrir hádegið (Álftanesskóla og Lækjarskóla í Hafnarfirði) og sækja síðan málþing í Kennaraháskólanum eftir hádegi.

 

Sýning hjá 6. bekk

17. okt. 2008

Nemendur 6. bekkjar luku deginum með því að bjóða foreldrum og öðrum nemendum að skoða sýningu á vinnu þeirra með innyfli. Hér eru nokkrar myndir frá sýningunni:

 

Innmatur í rannsókn

17. okt. 2008

 

 

Nú stendur sláturtíðin sem hæst og margir sem gera sér góðan mat úr afurðum sauðkindarinnar. Það er líka kærkomið tækifæri til að skoða og snerta á ýmsu óvenjulegu sem oft er aðeins hægt að skoða í bókum eða á skjá. Krakkarnir í 6. bekk voru í gær að skoða innyfli úr sauðfé undir stjórn búfræðingsins og umsjónarkennara síns Lárusar Hannessonar. Nokkrar myndir eru hér á myndasafninu.

 

Kynningarfundir um nýja menntastefnu

15. okt. 2008

Menntamálaráðuneytið hefur í haust kynnt þær breytingar sem hafa verið gerðar á lögum um leik-, grunn- og framhaldsskóla undir heitinu Ný menntastefna. Góðar upplýsingar um hvað felst í stefnunni er að finna á vef ráðuneytisins sem ber sama nafn, Ný menntastefna. Allir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér þennan vef.

Kynningarfundir fyrir Vesturland á menntastefnunni verða haldnir í Borgarnesi á morgun, 16. október, annars vegar kl. 13.00, og er sá fundur hugsaður fyrir sveitarstjórnarmenn og stjórnendur skóla- og fræðslumála, og svo hins vegar opinn borgarafundur kl. 20.00.

Fundirnir eru haldnir í hinum nýja Menntaskóla Borgarfjarðar og borgarafundurinn kl. 20 er líka sendur út um fjarfundabúnað í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði.

Hér að neðan er birtur kafli úr kynningarbréfi vegna fundanna:

Á fyrri fundinum verður megináherslan lögð á að fjalla um þær breytingar og nýjungar sem lögin boða og hafa munu sérstök áhrif á starfshætti sveitarfélaga og starfsmanna þeirra er sinna málefnum leik- og grunnskóla fyrst og fremst. Fjallað verður um ýmsar spurningar sem vaknað hafa í upphafi skólaársins, þ.á.m. gjaldtöku vegna skólamáltíða og ferðalaga nemenda, kostnað vegna náms grunnskólanemenda í framhaldsskólum, skipan skólaráða, samrekstrarmöguleika o.fl.  Þá verður vikið að breytingum á hlutverki og skyldum skólastjórnenda og nýjum skyldum sveitarfélaga við eftirlit og mat á gæðum skólastarfs, vegna sérfræðiþjónustu o.fl . Spurt verður hvort skynsamlegt sé að setja á fót millikærustig innan sveitarfélags í ljósi kæruheimilda er tengjast ýmsum ákvæðum nýrra laga. Farið verður yfir stöðu reglugerðar- og námskrárvinnu í tengslum við lögin o.fl. Þessi álita- og umræðuefni auk þeirra annarra sem fundarmenn hafa áhuga á að bera upp verða í brennidepli á þessum fundum og gefinn verður góður tími til umræðna að loknum framsögum fulltrúa menntamálaráðuneytis og sambandsins.

Við hvetjum ykkur til þess að nýta þetta tækifæri vel til þess taka virkan þátt í fundinum og koma ykkar skoðunum á framfæri. Álit ykkar sveitarstjórnarmanna og starfsmanna og stjórnenda skóla- og fræðslumála á nýjum lögum og þeim áhrifum sem þau munu hafa á skólahaldsveitarfélaga til framtíðar er afar þýðingarmikið innlegg í áframhaldandi starf og framþróun á grundvelli laganna,  þ.á.m. í tengslum við þá reglugerðarvinnu sem nú er hafin.    

Seinni fundurinn verður opinn borgarafundur á vegum menntamálaráðuneytisins til kynningar á nýrri menntalöggjöf fyrir skólafólk, foreldra, nemendur og annað áhugafólk um skólamál. Það er von okkar að þið hvetjið til góðrar mætingar einnig á þá fundi og sveitarstjórnarfólk fjölmenni jafnframt til umræðna og fyrirspurna til menntamálaráðherra . Fundirnir verða haldnir milli kl 20 og 22 á hverjum stað og ný menntalöggjöf kynnt af ráðherra (eftir því sem tök eru á) og sérfræðingum menntamálaráðuneytis. Opið verður fyrir umræður að erindum loknum.

 

Ferðalangar komnir heim

13. okt. 2008

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í síðustu viku fóru fjórir kennarar til Spánar vegna Comeniusar-verkefnis sem skólinn hefur verið þátttakandi í undanfarin ár. Verkefnið er unnið í samstarfi við skóla frá Finnlandi, Póllandi, Ítalíu og Spáni og kallast Compass To Cultures. Ferðin tókst vel og var unnið við að skipuleggja starfið í vetur en það fjallar um tómstundir barna. Skólinn í Villanueva de la Reina var vinnustaðurinn þessa daga og einnig var farið í skoðunarferðir um nágrennið.

Hér vinstra megin á síðunni er tengill á vef verkefnisins sem gefur einhverja hugmynd um hvaða verkefnum hefur verið unnið að. Aðalafraksturinn er þó í vinnu nemendanna í hverjum skóla (1.-4. bekk hjá okkur) og hefur m.a. verið sýnilegur að hluta á veggjum skólanna.

 

 

Skólahlaup í rigningu og roki

27. sept. 2008

Skólahlaupið fór fram í dag eins og búið var að skipuleggja. Veðrið var reyndar ekki eins og best varð á kosið - en það hefur heldur ekki verið það undanfarna daga! Þrátt fyrir það var hitað upp og hlaupið nema yngstu krakkarnir slepptu hlaupinu að þessu sinni. Að loknu hlaupi fengu allir viðurkenningu og boðið var upp á pylsur og safa.

MYNDAALBÚM frá hlaupinu er á myndasíðunni

Starfsdagur 29. september

22. sept. 2008

Eins og fram kemur á skóladagatalinu þá verður næsta mánudag svokallaður starfsdagur kennara og þess vegna enginn skóladagur hjá nemendum. Daginn nýta kennarar til þess að undirbúa og skipuleggja ýmis verkefni sem eru framundan á þessu skólaári. Þar má nefna endurskoðun skólanámskrár, vinnu við sjálfsmat skólans, Grænfána-verkefni og fleira af því tagi. Einnig er skólinn, ásamt öðrum skólum á Snæfellsnesi, með í þróunarverkefni um að efla lesskilning og verður unnið að því í allan vetur.

Danskennsla

8. sept. 2008

Danskennslan verður með svipuðu snið nú í haust eins og verið hefur. Það er Dansskóli Jóns Péturs og Köru sem hefur umsjón með kennslunni og verða tímarnir næstu 8 þriðjudaga, þ.e. síðasti tíminn verður 28. október. Kennt verður í sal Tónlistarskólans (gamla íþróttahúsi).

Á morgun byrjar 2. bekkur kl. 8.50, 3. og 4. bekkir eru svo kl. 9.40, 5 og 6. bekkir kl. 10.30 og 1. bekkur kl. 11.10

Enn af skóladagatali...

8. sept. 2008

Dagatalið var sett á vefinn í síðustu viku og höfðu þá verið gerðar breytingar frá þeim drögum sem lögð voru fram síðastliðið vor. Því miður varð okkur á í messunni með niðurröðun svokallaðra "starfsdaga kennara" en það hefur nú verið leiðrétt og ætti dagatalið að vera rétt eins og það er núna.

Starfsdeildin og ABC barnahjálp

1. sept. 2008

 

 

 

 

 

 

 

Síðastliðinn vetur unnu nokkrir nemendur í 9. og 10. bekk að því að gera upp bíl. Bíllinn sem hafði áður verið í eigu Braga Jósepssonar var kominn á "haugana" og hans biðu þau örlög að flytjast úr landi sem brotajárn. Krakkarnir gerðu bílinn gangfæran undir stjórn Sigrúnar Svavarsdóttur umsjónarkennara síns og nutu við það verkefni aðstoðar ýmiss sérfræðinga sem lögðu til verkfæri og góð ráð.

Enginn krakkanna hefur bílpróf og þótti Sigrúnu það dapur endir á góðu verkefni ef bíllinn endaði aftur uppi í Snoppu. Þegar hún frétti af samstarfi Bílasölu Guðfinns og ABC barnahjálpar setti hún sig í samband við Guðfinn sem tók henni fagnandi og fannst bíllinn geta verið tákn fyrir verkefnið þar sem "börn hjálpa börnum". Bíllinn hefur fengið skoðun og er nú til sölu hjá Guðfinni og mun söluandvirðið renna óskipt til ABC barnastarfs.

Myndin er úr safni Mbl. og hana tók Kristinn ljósmyndari þegar krakkarnir ahentu bílinn sl. mánudag.

Matseðill

1. sept. 2008

Matseðill fyrir september er kominn á netið. Sjá tengil hér að ofan.

Fyrstu skóladagarnir

27. ágúst 2008

Nú er fyrsta heila skólavikan hálfnuð. 10. bekkingar eru í Danmerkurheimsókn ásamt umsjónarkennara sínum og fleirum og koma þau til baka næstkomandi mánudag.

Vel hefur gengið með mötuneytið þessa dagana og breytingin með matartímann virðist hafa heppnast vel. Vonandi verður hægt síðar í vetur að bjóða upp á heitan mat á föstudögum líka.

Nokkrir hafa hringt og spurt um skóladagatalið enda er það ekki komið á heimasíðuna enn þá. Við viljum biðjast velvirðingar á því að það hefur dregist að gefa út endanlega útgáfu dagatalsins og vitum að margir ætla sér að skipuleggja ýmislegt út frá því. Skóladagatalið verður sett upp og því dreift í næstu viku.

Innkaupalistar

19. ágúst 2008

Fleiri innkaupalista má finna hér:

 

 

Skólabyrjun

6. ágúst 2008

Fyrsti skóladagur nemenda verður fimmtudaginn 21. ágúst. 1. - 4. bekkur mæta í skólann við Skólastíg kl. 11 og hitta kennara sína en 5. - 10. bekkur eiga að mæta kl. 10 við Borgarbraut.

Kennsla samkvæmt nýrri stundaskrá hefst svo föstudaginn 22. ágúst.

Kennarar hefja starfsárið með námskeiði þann 13. ágúst ásamt öðrum kennurum á Snæfellsnesi. Fundir og undirbúningsdagar kennara eru svo frá 15. til 20. ágúst.

Innkaupalistar

3. júní 2008

Innkaupalista fyrir 1. - 4. bekk má nálgast hér.

 

 

 

 

Eldri fréttir:


maí 2008
apríl 2008
mars 2008
febrúar 2008
janúar 2008
desember 2007
nóvember 2007
október 2007
júní til september 2007
apríl og maí 2007
mars 2007
febrúar 2007
janúar 2007
nóvember og desember 2006
október 2006
ágúst og september 2006
maí 2006
mars og apríl 2006
febrúar 2006
janúar 2006